Gunni wrote:
Ekki flókið mál. Árangur KFÍ á næsta ári ræðst af þeim 8-10 útlendingum sem verða keyptir til að spila fyrir þá. Með góða túlka eru þeir til alls líklegir.
Gunni fær prik fyrir besta humorinn hér. Góður!!!
Ég er í stjórn KFÍ og hef haft mikið gagn og gaman að því að lesa þessar vangaveltur. Greinilega búast menn við miklum tíðindum að Vestan (sem er líklega skiljanlegt) og vonandi verða þau öll góð fyrir okkur. Lofa ykkur því að taka þetta allt saman til greina og væntanlega mun stjórn KFÍ hittast fljótlega og fara yfir þessar tillögur sem hér hafa komið fram. Niðurstaðan verður svo væntanlega kynnt eftir fund.
Með körfuboltakveðju,
Helgi Kr. Sigmundsson, ritari KFÍ.