Bolti.is
Velkomin(n), Félagi
Vinsamlegast veldu: Innskráning eða Nýskráning.    Týnt lykilorð?
Daði Berg í KFÍ.
(1 eru að skoða spjallið) 1 gestir
Go to bottomSetja inn nýtt umtalsefniSetja inn svar
Umtalsefni: Daði Berg í KFÍ.
#5643
Áhugamaður um körfubolta.

Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan  
Sé á heimasíðu KFÍ að Daði Berg Grétarsson úr Ármanni hefur gert munnlegt samkomulag um að ganga í raðir KFÍ. Það er góður liðstyrkur fyrir Ísfirðinga. Einnig hafa Craig og Igor gert nýja samninga. Þetta er góðar fréttir og greinilegt að KFÍ er strax byrjað að undirbúa sig fyrir átökin í IE deildinni. Nú er bara að sjá hvort þeir ná að semja við þjálfarann, hann ku vera ansi hreint eftirsóttur þessa dagana skiljanlega.
 
Logged Logged
  Reply Quote
#5644
Hugi

Re:Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan  
Er fólk hérna almennt með þetta KFÍ lið á heilanum? Það er heilmikið um að vera í IE deildinni, bæði á toppi og botni deildarinnar, og sumir hér geta ekki rætt neitt annað en hvað muni gerast næst á Ísafirði!

Mér finnst þetta bara merkilegt, en ok þá segið mér hverjir haldið þið að muni fara úr IE deildinni í ár og koma í staðinn fyrir KFÍ í fyrstu deild næsta ár?
 
Logged Logged
  Reply Quote
#5645
geir

Re:Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan  
breiðablik.
 
Logged Logged
  Reply Quote
#5647
Siggi

Re:Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan  
Blikar
 
Logged Logged
  Reply Quote
#5650
Hugi

Re:Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan  
Já, Blikar eiga erfiða baráttu framundan. Hvernig eru horfurnar hjá FSU fyrir næsta ár? Halda þeir Christopher Caird? Hvað með þjálfarann, fer hann kannski aftur til Vals?
 
Logged Logged
  Reply Quote
#5653
XY

Re:Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan  
Daði Berg í KFÍ . . who cares ??
 
Logged Logged
  Reply Quote
#5656
Vestfirðingur

Re:Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan  
Greinilega KFÍ...og ég er ekki hissa, því ég sá þennan dreng í fyrsta sinn á föstudagskvöldið spila glimrandi leik gegn mínum mönnum! Mikill happafengur þarna fyrir okkur. Hér er mikil stemning og frábært ef metnaðarfullir ungir leikmenn taka eftir því.
 
Logged Logged
  Reply Quote
#5657
KAG

Re:Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan  
Skyldi blessaður maðurinn hann Daði vita nokkuð um þessa tilkynningu Gaua og félaga hans ? Það kæmi mér ekki á óvart þó að blessaður drengurinn hafi orðið svolítið hissa þegar hann vaknaði eftir veisluna
 
Logged Logged
  Reply Quote
#5660
Gaui.Þ
Ef ekki ég, hver þá ?
Expert Boarder
Posts: 110
graphgraph
User Offline Click here to see the profile of this user
Gender: Male Location: Ísafjörður Birthday: 04/17
Re:Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan Karma: 0
Ég er hissa á þessum póstum hér. Ég legg það ekki í vana minn að svara, en tel mig knúinn í þetta sinn. Það vill til að ég er partur af stjórn KFÍ og er mjög ánægður með síðustu daga. Daði Berg er kannski að koma og hefur líst vilja til þess að spila með KFÍ. Það mál er á frumstigi, eins og lesa má á kfi.is. Það eru aðrir sem munu ganga í þau mál, enda á eftir að kjósa nýja stjórn. Ég þarf ekki að taka neitt til baka sem fréttaritari kfi.is hefur sett inn. Þar eru málin í góðum farveg og verða væntanlega kláruð nema að einhverjir setji stólinn fyrir dyrnar hjá ungum og efnilegum leikmönnum. Ég skil ekki hver er allt í einu á móti því að fá unga og efmilega íslenska leikmenn hingað. Þetta er greinilega alveg nýtt mál og verður tekið upp á næsta stjórnarfundi.

Áfram karfa.
Gaui.Þ
 
Logged Logged
 
\"A positive attitude may not solve all your problems, but it will annoy enough people to make it worth the effort\".
  Reply Quote
#5661
Skallinn
Senior Boarder
Posts: 53
graphgraph
User Offline Click here to see the profile of this user
Gender: Male Location: Hafnarfjörður Birthday: 08/05
Re:Daði Berg í KFÍ. 5 mánuðir, 3 vikum síðan Karma: 0
Ég varð nú persónulega vitni af "samningaviðræðunum" við Daða, reyndi mitt til að eyðileggja þær og fá hann yfir í Skallagrím, en ekki tókst það
Ég held að vinir mínir á Ísafirði eigi eftir að plumma sig fínt í Úrvalinu með Igor og Craig vin minn
 
Logged Logged
  Reply Quote
Go to topSetja inn nýtt umtalsefniSetja inn svar